Skruppum til Ísafjarðar 24-26 ágúst til þess að heilsa upp á ættingjana. Bjuggum á Góustöðum og var það mjög þægilegt. Fórum í matarboð, sjóferðir og sund og höfðum það virkilega gott. Takk fyrir okkur.
Hér er liðið ásamt mömmu fyrir framan Hlíf. Jósep tók myndina
Á Góustöðum
Ása litla var hrifin af veggteppinu
Morgunmatur í eldhúsinu á Góum Ásdís, Þórdís, Jósef og Ása
Á sjó með Dúdda
Ásdís stýrimaður á Brimli
Dúddi skipstjóri og Svenni léttadrengur. Óshlíðin í baksýn
Matarboð hjá Önnu Lóu og Gulla
Borðað úti með tjaldað yfir að Ísfirskum sið
Kannski eru þau að hlæja að brandara kokksins á næstu mynd
Gulli yfirkokkur með Mazatlan hattinn íklæddur mörgæsasvuntu
Þetta er svona uppstillingarmynd af gestum og gestgjafa meðan allir voru uppistandandi
Hattaprófun
Systurnar brostu sínu breiðasta og Ása var með tilburði sem ekki náðust þar sem maturinn var svo góður